
Viktor Jónsson var hetja Skagamanna og andstæðingarnir voru meðvitaðir um það. Ljósm. Jón Gautur Foto.
Viktor með þrennu þegar Skagamenn tryggðu sæti í efri hlutanum
Skagamenn tryggðu sér í gær sæti í efri hluta Bestu deildar karla með glæsilegum 3:1 sigri á KR á Elkem vellinum á Akranesi í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Viktor Jónsson var maður leiksins og skoraði öll þrjú mörk ÍA. Mikið var undir hjá báðum liðum. Skagamenn þurftu á góðum úrslitum að halda í baráttunni um sæti í efri hlutanum en KR-ingar börðust um annað sæti deildarinnar.