Síðasti deildarleikurinn fyrir skiptingu

Það verður allt lagt undir í leik gömlu erkifjendanna ÍA og KR þegar liðin mætast á Elkem vellinum á Akranesi í mikilvægum leik í Bestu deildinni klukkan 14 í dag. Þetta verður jafnframt síðasti deildarleikurinn í sumar áður en deildinni verður skipt upp. Með sigri í dag geta Skagamenn tryggt sér sæti meðal sex efstu liða í deildinni, en úrslita leikirnir hefjast um næstu helgi. En baráttan verður hörð: Skagamenn eru nú með 27 stig í 6.-8. sæti, ásamt Val og Stjörnunni. KR er hins vegar í 2.-3. sæti deildarinnar ásamt Fram með 44 stig. Víkingur trónir á toppnum með 52 stig.

Því má bæta við að Akraborg ætlar að bjóða öllum þeim sem mæta í gulu frítt á völlinn í dag. Það er því um að gera að skella sér því veðrið er ákjósanlegt; sól og blíða.