
Unnið við laxeld i sjó. Ljósm. Austurfrétt/ Laxar fiskeldi
Algjört metár í vændum í fiskeldinu
Útflutningsverðmæti eldisafurða í fiski nam 4,8 milljörðum króna í júlí. Samtals eru verðmætin komin í 40,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri á þessum tíma árs. Í Radarnum, vefriti SFS, kemur fram að teknu tilliti til gengisbreytinga nemur aukningin tæpum 36% frá sama tímabili í fyrra, þegar verðmætin voru 30,1 milljarður króna á föstu gengi. Til samanburðar nam útflutningsverðmæti eldisafurða rúmlega 53 milljörðum króna allt árið í fyrra. Verðmætin á fyrstu sjö mánuðum þessa árs nema því þegar rúmlega þremur fjórðu af verðmæti síðasta árs í heild.