
Forsvarsfólk LbhÍ og Krónunnar eftir undirritun samstarfssamnings. Ljósm. aðsend
Krónan og LbhÍ hefja samstarf
Krónan og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning. Markmiðið er að færa nemendur skólans nær atvinnulífinu, efla þekkingu þeirra á matvælamarkaði og styrkja tengsl Landbúnaðarháskólans, bændasamfélagsins og Krónunnar. Samstarfið nær meðal annars til náms í búfræði og búvísindum. „Starfsfólk Krónunnar mun taka þátt í kennslu með fyrirlestrum, fyrirtækjaheimsóknum og ráðgjöf. Nemendur fá þannig innsýn í starfsemi matvöruverslunar, vöruþróun, neytendahegðun og sjálfbærni og vinna með raunveruleg viðfangsefni íslensks matvörumarkaðar,“ segir í tilkynningu vegna samningsins.