
Skipið gnæfir yfir farþegabátinn sem flytur fólkið til og frá skipinu yfir daginn. Ljósmyndir: TFK
Síðasta stóra skip sumarsins í Grundarfirði
Skemmtiferðaskipið Sky Princess kom til Grundarfjarðar föstudaginn 4. september í sína síðustu heimsókn þetta sumarið. Skipið er 330 metrar að lengd og rúmir 38 metrar á breidd og var á ankeri í höfninni. Skipið tekur 3.600 farþega og voru fjölmargir þeirra á ferð innanbæjar þennan fallega föstudag og iðaði bærinn því af lífi.