Núverandi og fyrrverandi sóknarprestar ásamt sr. Gísla Gunnarssyni. F.v. sr. Karen Hjartardóttir, sr. Sigurður Kr Sigurðsson, sr. Jón Þorsteinsson, sr. Laufey Brá Jónsdóttir, sr. Aðalsteinn Þorvaldsson og sr. Gísli Gunnarsson. Texti og myndir: TFK

Sextíu ára vígsluafmæli Grundarfjarðarkirkju

Sunnudaginn 6. september var hátíðarmessa í Grundarfjarðarkirkju þar sem 60 ár eru frá því að kirkjan var vígð. Séra Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum flutti predikun en sr. Karen Hjartardóttir núverandi sóknarprestur í Setbergsprestakalli stýrði hátíðlegri stund. Fjölmennt var í messunni. Margir fyrrverandi prestar í sókninni létu sjá sig en einnig mætti Sigurbjörn Magnússon en hann er sonur Sr. Magnúsar Guðmundssonar sem var prestur í sókninni þegar Grundarfjarðarkirkja var vígð. Eftir hátíðarmessuna bauð Kvenfélagið Gleym mér ei í hátíðarkaffi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.