Eftir að grunnskóla lýkur þurfa ungmenni að sækja sér menntun út fyrir sveitarfélagið. Myndin er af Heiðarskóla.

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna ungmenna

Hvalfjarðarsveit hefur opnað fyrir umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15–17 ára ungmenna sem þurfa að dvelja fjarri lögheimili sínu vegna náms. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum og forsjáraðilum ungmenna á þessum aldri sem leigja herbergi, dvelja á heimavist eða námsgörðum fjarri heimili sínu. Hann er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila.