
Í tilefni 50 ára afmælis Sumartónleika í Skálholti flytur Kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák og Finnish Baroque Orchestra Jóhannesarpassíu J.S. Bachs. Stjórnandi og guðspjallamaður er Benedikt Kristjánsson sem búsettur er á Akranesi. Aðrir flytjendur eru María Konráðsdóttir sópran, Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran, Hrólfur Sæmundsson sem syngur Pílatus og Tobias Berndt sem syngur Jesú. Sumartónleikar í Skálholti…Lesa meira








