
Stilla úr bíómyndinni Undir Ísnum, sem frumsýnd verður í mars.
Tónhylur þakkar Skagamönnum fyrir móttökurnar
„Fyrir hönd Tónhyls viljum við færa Skagamönnum þakkir fyrir frábærar móttökur síðasta sumar þegar við tókum upp bíómyndina Undir Ísnum. Það var mikið rætt innan framleiðsluteymisins hvað Skagamenn voru boðnir og búnir til að aðstoða okkur og styðja við ungt fólk í kvikmyndagerð. Okkar bestu þakkir fá Sundlaugin á Jaðarbökkum, Kallabakarí og Lemon Akranesi. Stuðningurinn ykkar skipti sköpum! Vonumst svo til að sjá sem flest ykkar í bíó í mars,“ segir í tilkynningu frá Guðfinnu Birtu Valgeirsdóttur framleiðanda hjá Tónhyl.