Flytja Jóhannesarpassíu Bachs í Eldborgarsalnum

Í tilefni 50 ára afmælis Sumartónleika í Skálholti flytur Kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák og Finnish Baroque Orchestra Jóhannesarpassíu J.S. Bachs. Stjórnandi og guðspjallamaður er Benedikt Kristjánsson sem búsettur er á Akranesi. Aðrir flytjendur eru María Konráðsdóttir sópran, Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran, Hrólfur Sæmundsson sem syngur Pílatus og Tobias Berndt sem syngur Jesú.

Sumartónleikar í Skálholti fagna 50 ára afmæli hátíðarinnar með því að flytja eitt þekktasta barokkverk tónlistarsögunnar; Jóhannesarpassíu Bachs, í Eldborg. Í fyrsta sinn á Íslandi verður 4. útgáfa verksins flutt, en Bach flutti passíuna fjórum sinnum á starfsævi sinni og breytti henni ávallt fyrir hvern flutning. Þessi síðasta útgáfa var flutt einu ári áður en Bach lést árið 1749.

Benedikt Kristjánsson er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri Sumartónleika í Skálholti. Hann stjórnaði flutningi Jólaóratoríunnar og söng hlutverk guðspjallamannsins í uppfærslu Listvinafélagsins í Reykjavík í desember 2024. Benedikt hefur tekið þátt í flutningi Jóhannesarpassíunnar í helstu tónleikasölum Evrópu, Kanada og í Bandaríkjunum. Hann útbjó einnig sérstaka útgáfu passíunnar fyrir tenór, sembal/orgel og slagverk sem m.a. var flutt í Tómasarkirkjunni í Leipzig á föstudaginn langa, árið 2020 í miðjum heimsfaraldri og var flutningnum streymt af stærstu sjónvarpsstöðvum Þýskalands. Benedikt fékk þýsku tónlistarverðlaunin Opus Klassik fyrir nýstárlegastu tónleika ársins fyrir flutning verksins.

Miðasala á tónleikana er á tix.is

-fréttatilkynning