
Unnur Ösp segir sögu Sölku á Sögulofti Landnámsseturs. Ljósm. aðsend
Halldór og Unnur Ösp eru öflugt tvíeyki
Salka – ástin og dauðinn, einleikur Unnar Aspar Stefánsdóttur, var frumsýndur í Landnámssetrinu í Borgarnesi um helgina. Verkið er sett á fjalirnar í samstarfi við Þjóðleikhúsið og tilefnið er 20 ára starfsafmæli Landnámssetursins sem hóf starfsemi sína árið 2006. Verk Unnar byggir á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness um Sölku Völku; Þú vínviður hreini.