Frumvarp um breytingu á lögum um ársreikninga

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um breytingu á lögum um ársreikninga. „Frumvarpið er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi. „Með frumvarpinu er reynt að tryggja að flokkun félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra. Lögð er til rýmkun á stærðarmörkum þeirra félaga sem geta nýtt sér einföld rafræn skil með því að vera skilgreind sem örfélög. Stór hluti íslenskra fyrirtækja falla undir fyrrgreind stærðarmörk,“ segir í kynningu.