Enn skelfur jörð við Eldey

Jarðskjálftahrina sem hófst við Eldey út af Reykjanesskaganum um hádegisbil á laugardaginn heldur áfram. Hafa nú mælst rúmlega 300 skjálftar í hrinunni og stendur hún enn yfir þó ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær. Stærsti skjálftinn hingað til mældist 3,4 að stærð kl 16:50 í gær sunnudag, en Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð. Jarðskjálftahrinur við Eldey eru fremur algengar, þær eru alla jafnan vegna flekahreyfinga en aukin spenna á Reykjanesskaga umbrota þar síðan 2020 hafa einnig aukið tíðni jarðskjálftahrina á svæðinu. Síðast var hrina við Eldey 3. desember 2025.