Meðfylgjandi mynd var tekin á föstudaginn. Neðst er sparkvöllurinn dökkur að lit, en sundlaug og pottasvæði undir bláum dúk meðan lokið er við að flísaleggja. Þá er nýja íþróttahúsið, en til vinstri er leikskólinn, félagsheimilið Dalabúð fyrir miðju og grunnskólinn til hægri. Handan götunnar er svo Stjórnsýsluhúsið. Líklega er hvergi í þéttbýli hér á landi öll þessi grunnþjónusta á sama blettinum. Ljósm. mm

Nú styttist í vígslu á íþróttamannvirkjum í Búðardal

Það var létt yfir mannskapnum sem blaðamaður Skessuhorns hitti í nýju íþróttahúsi og sundlaug í Búðardal síðdegis á föstudaginn. Iðnaðarmenn voru að störfum og leggja nú nótt við dag að ljúka framkvæmdum tímanlega fyrir vígslu hússins í lok þessa mánaðar. Það var 11. júní fyrir hálfu öðru ári, sama dag og Dalabyggð fagnaði 30 ára afmæli, sem skrifað var undir verksamning milli Dalabyggðar og Eyktar ehf. um alverktöku við framkvæmdirnar. Sama dag tóku ungmenni úr Dalabyggð svo fyrstu skóflustungurnar.