Liðsmenn Grundarfjarðar fagna að leik loknum á sunnudaginn. Ljósm. tfk

Grundarfjörður gerði góða ferð í Mosfellsbæ

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki kvenna heimsótti lið Aftureldingar B að Varmá í Mosfellsbæ í gær. Stelpurnar úr Grundarfirði byrjuðu leikinn af krafti og unnu fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 13-25 og komust í forystu 0-1. Heimakonur í Aftureldingu mættu aðeins ákveðnari til leiks í annarri hrinu en það dugði þó ekki til þar sem gestirnir unnu hrinuna 21-25 og komust í 0-2. Jafnt var á með liðinum í þriðju hrinunni enda heimakonur komnar með bakið upp við vegg og þurftu nauðsynlega að knýja fram sigur í hrinunni til að minnka muninn. Það heppnaðist á endanum og vann Afturelding 25-21 og minnkaði muninn í 1-2. Þetta hleypti krafti í gestina sem komu grimmar til leiks í fjórðu hrinu og náðu að klára hana 20-25 og tryggja sér þar með 1-3 sigur.