Lið ÍA ásamt þjálfara sínum Lucien Christofis. Til gamans má geta þess að Skessuhorn á tvo blaðburðadrengi í þessum vaska hópi!

Gott silfur er gulli betra

Í gær lék lið 9. flokks karla hjá ÍA til úrslita í VÍS-bikarkeppni í körfuknattleik gegn Fjölni í Reykjavík. Leikurinn markaði tímamót í sögu félagsins, en 30 ár eru liðin frá því ÍA lék síðast til úrslita í bikarkeppni í körfuknattleik. Þá er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unglingalið félagsins nær svo langt í keppninni. Þrátt fyrir mikla og góða baráttu varð ÍA að sætta sig við tap, 66–78, í vel spiluðum og drengilegum leik.

Framganga ÍA í keppninni vakti verðskuldaða athygli, enda lagði liðið meðal annars Íslandsmeistara síðustu tveggja ára að velli á leið sinni í úrslitaleikinn. Kjarni liðsins er skipaður fimm leikmönnum úr 9. flokki og til að breikka hópinn fengu þeir til liðs við sig leikmenn úr 7. og 8. flokki.

Gott silfur er gulli betra - Skessuhorn