Löskuð ekjubrú síðdegis í dag. Ljósm. sá

Glussaloki gaf sig í ekjubrú Baldurs

Eftir að flóabáturinn Baldur hélt í sína daglegu ferð yfir Breiðafjörðinn í dag varð óhapp á bryggjunni. Glussaloki við dælu í ekjubrú gaf sig með þeim afleiðingum að brúin féll og skekktist, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Engin slasaðist í þessu óhappi. Nú síðdegis eru starfsmenn frá Skipavík og BB & sonum að vinna við að rétta bryggjuna af svo hægt verði að meta tjónið og undirbúa viðgerð. Í það minnsta liggur fyrir að tjón er nokkuð; boginn tjakkur og mögulega fleira sem hefur gefið sig við höggið. Baldur getur lagst að bryggju en ekki verður hægt að ferja bíla milli skips og bryggju meðan ekjubrúin er löskuð. Að sögn tíðindamanns Skessuhorns má búast við að viðgerð standi í einhverja daga.