Fréttir

true

Úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Nýverið var við athöfn á Hótel Borgarnesi úthlutað styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Sjóðurinn hefur þann tilgang að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi og er fjármagnaður af ríkinu í gegnum Sóknaráætlun Vesturlands. Sjóðurinn auglýsti eftir umsóknum í október síðastliðnum og bárust 94 umsóknir þar sem alls var sótt um styrki að fjárhæð 196 milljónir…Lesa meira

true

Fimm styrkir á Vesturland úr Safnasjóði

Logi Einarsson menningarráðherra hefur veitt 70 styrki til úr Safnasjóði. Er þetta aukaúthlutun vegna ársins 2025. Til símenntunarverkefna og námskeiðahalds voru veittir 50 styrkir og 20 styrkir voru veittir til stafrænna kynningarmála. Meðal styrkþega nú eru Byggðasafnið í Görðum á Akranesi sem hlýtur 300.000 krónur til kynningar og opnunar í Bátahúsi. Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri…Lesa meira

true

Leita samstarfs í barnaverndarþjónustu

Sveitarstjórn Dalabyggðar leitar enn samstarfs sem tryggi að barnaverndarþjónusta sveitarfélagsins uppfylli kröfur laga um barnavernd frá árinu 2023. Þar er gerð krafa um að ekkert þjónustusvæði barnaverndar sé með færri íbúa en 6.000 íbúa. Sveitarfélagið hefur heimild til sjálfstæðis í málaflokknum til 28. febrúar næstkomandi. Líkt og kom fram í fréttum Skessuhorns fyrr í vetur…Lesa meira

true

Leggja til að loðnukvótinn verði aukinn í 197 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun hefur lokið við úrvinnslu niðurstaðna loðnumælinga sem fóru fram dagana 19.-25. janúar sl. Samkvæmt gildandi aflareglu strandríkja, sem byggir á niðurstöðum haustmælingar árið 2025 og þessarar vetrarmælingar, leggur Hafrannsóknastofnun til að afli á þessari vertíð verði allt að 197.474 tonn, en það er margfalt það magn sem stofnunin hafði áður mælt með veiðum á.…Lesa meira

true

Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð í dag vegna útfarar

Í dag klukkan 13 fer fram frá Akraneskirkju útför Ómars Arnar Kristóferssonar, sveitarstjórnarfulltrúa í Hvalfjarðarsveit. Af þeim sökum verður skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð frá hádegi í dag. Ómar Örn Kristófersson var fæddur 1. júní 1982. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Lambalæk í Hvalfjarðarsveit 17. janúar síðastliðinn. Sveitarstjórn og sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar minnast Ómars Arnar: „Hann sat…Lesa meira

true

Hættir sem hafnarstjóri eftir 31 ár starf

Rætt við Björn Arnaldsson hafnarstjóra um árin í Snæfellsbæ Björn Arnaldsson hefur verið hafnarstjóri Snæfellsbæjar undanfarin 31 ár, eða frá árinu 1994, en lætur af störfum nú um mánaðamótin. Þórður Stefánsson hefur verið ráðinn í starf hafnarstjóra og tekur við keflinu. Fréttaritari Skessuhorns hitti Björn að máli um helgina á hafnarskrifstofunni í Ólafsvík. Rætt var…Lesa meira

true

Stórhuga uppbygging bílasafns og afþreyingarmiðstöðvar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að heimila landeiganda Fellsenda i Hvalfjarðarsveit að vinna að breytingu á aðalskipulagi svæðisins og landnotkun þess og gera honum þannig kleift að ráðast í mikla uppbyggingu á jörðinni. Jörðin, sem er 256,3 hektarar að stærð, liggur að norðanverðu Akrafjalli frá efstu brún og niður að Eiðisvatni. Breyting aðalskipulaginu felst í því…Lesa meira

true

Mun leiða vinnu við nýja búvörusamninga

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að ráða Jarþrúði Ásmundsdóttur til að leiða samningaviðræður við Bændasamtök Íslands vegna endurskoðunar stuðningskerfis landbúnaðarins. Núverandi búvörusamningar renna út í lok þessa árs. „Mikilvægt er að skýr stefna verði mörkuð um framhaldið og hafa stjórnvöld átt í undirbúningsviðræðum við Bændasamtökin á síðustu mánuðum.…Lesa meira

true

Fasteignagjöld hækka mun meira en laun

Í kjölfar mikillar hækkunar fasteignamats hafa fasteignagjöld hækkað víða um land. Þetta gerist þrátt fyrir að mörg sveitarfélög hafi lækkað álagningarprósentu til að koma til móts við hærra fasteignamat. Þetta kemur fram í nýrri útttekt Verðlagseftirlits ASÍ á fasteignagjöldum 53 sveitarfélaga. Gjöldin samanstanda af fasteignasköttum, vatnsgjöldum, fráveitugjöldum og lóðarleigu. Af 53 stærstu sveitarfélögunum lækkaði álagningarprósentan…Lesa meira

true

Mikil fjárútlát og sóun fylgir niðurlagningu eldri farsímakerfa

Eins og fram hefur komið í fréttum vinna fjarskiptafyrirtækin hér á landi að lokun eldri farsímakerfa. Búið er að loka öllum 2G sendum og nú er komið að því að slökkva á 3G-sendunum. Þetta gera fjarskiptafyrirtækin til að rýma fyrir nýrri og öflugri tækni. Breytingin þýðir að búnaður sem aðeins styður 3G mun hætta með…Lesa meira