Fréttir

true

Frumvarpi ætlað að stytta bótatímabil atvinnuleysistrygginga

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi sem felur í sér breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu. Markmiðið er að grípa fólk fyrr en áður og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Hvergi á Norðurlöndum er bótatímabil atvinnuleysistrygginga jafn langt og á Íslandi, eða 30 mánuðir. Lagt er til…Lesa meira

true

Slá lán

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti formlega á dögunum lántöku sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals 600 milljónir króna. Lánið er verðtryggt til átta ára með 3,85% vöxtum sem eru fastir allan lánstímann.  Lánið er tekið til fjármögnunar á endurbyggingu húsnæðis Gunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum.Lesa meira

true

Vofa gjaldtöku í gömlu Hvalfjarðargöngin svífur yfir vötnum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um stofnun innviðafélags; „sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja,“ eins og segir í kynningu á frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda. Líkt og lesendur Skessuhorns muna var stofnun þessa félags kynnt þegar innviðaráðherra lagði fram drög að Samgönguáætlun 2026-2040 í byrjun desember. Fram…Lesa meira

true

Tveir voru fluttir til í starfi

Á árunum 2018-2025 voru gerðir 29 starfslokasamningar innan dómsmálaráðuneytisins og undirstofnana þess. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni þingmanni Miðflokksins um kostnað við starfslokasamninga. Undir ráðuneyti dómsmála starfa 40 stofnanir. Samtals var kostnaður við þessa starfslokasamninga um 400 milljónir króna. Engin stofnun á Vesturlandi gerði á þessu…Lesa meira

true

Eldhamrar heimsækja Heilsueflingu 60+

Krakkarnir á fimm ára deild Grunnskóla Grundarfjarðar komu færandi hendi í Heilsueflingu eldri borgara síðasta fimmtudag. Þá færðu þeir fullorðnu íþróttaiðkendunum falleg hjörtu með hvetjandi áletrun og léku sér svo með þeim. Í vetur hafa Heilsueflingin og fimm ára deildin heimsótt hvor aðra og tekið þátt í starfi hvors annars. Líklega hafa báðir hóparnir gagn…Lesa meira

true

Þúfan opnuð þar sem La Colina var í Borgarnesi

Nýr veitingastaður, kaffihús og viðburðarými mun opna á næstu vikum í Borgarnesi undir nafninu „Þúfan – pizzeria & espresso bar.“ Það eru fjórir vinir sem hafa tekið við rekstrinum á Hrafnakletti 1b þar sem pizzastaðurinn La Colina var. Þetta eru þau Agnes Hjaltalín Andradóttir, Jóel Darri Ólafsson, Rannveig Rögn Leifsdóttir og Páll Einarsson. Fyrirhugað er…Lesa meira

true

Góð byrjun á tímabilinu á Reykjavik International Games

Miklar bætingar voru hjá sundfólki frá Akranesi á Reykjavík International Games sem fram fór um helgina. Reykjavíkurleikarnir voru að þessu sinni haldnir í 19. skipti, hófust á fimmtudaginn en lauk í byrjun vikunnar. Eymar Ágúst Eymarsson bætti sig í öllum þremur greinum sem hann tók þátt í. Sunna Dís Skarphéðinsdóttir bætti sig í tveimur greinum…Lesa meira

true

Allt undir í leikjunum í dag og á morgun

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir í dag Sviss í þriðja og næstsíðasta leik í milliriðli 2 á EM í Svíþjóð. Hefst leikurinn klukkan 14:30. Á sama tíma á morgun mætir liðið svo Slóveníu. Vinni Ísland þessa tvo síðustu leiki í milliriðli fer það í undanúrslit mótsins sem hefst á föstudaginn. Ísland er sem stendur í…Lesa meira

true

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta

Fiskistofa hefur auglýst á vef sínum eftir umsóknum um byggðakvóta sem innviðaráðherra hefur úthlutað til Grundarfjarðar, Ólafsvíkur og Stykkishólms. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns var úthlutað 15 tonnum af byggðakvóta til Ólafsvíkur, 100 tonnum til Grundarfjarðar og 50 tonnum til Stykkishólms. Umsækjendur um byggðakvótann þurfa að uppfylla ýmis skilyrði til þess að…Lesa meira

true

Blaklið Grundarfjarðar spreytti sig gegn þeim bestu

Meistaraflokkur kvenna í blaki tók á móti toppliði efstu deildar í blaki í bikarkeppni BLÍ á laugardaginn. HK er langefst í Unbrokendeild kvenna og mætti 1. deildar liði UMFG í Grundarfirði. Stelpurnar í Grundarfirði eru í þriðja sæti í fyrstu deild og því var við ramman reip að draga. Gestirnir í HK byrjuðu af krafti…Lesa meira