Mun leiða vinnu við nýja búvörusamninga

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að ráða Jarþrúði Ásmundsdóttur til að leiða samningaviðræður við Bændasamtök Íslands vegna endurskoðunar stuðningskerfis landbúnaðarins. Núverandi búvörusamningar renna út í lok þessa árs. „Mikilvægt er að skýr stefna verði mörkuð um framhaldið og hafa stjórnvöld átt í undirbúningsviðræðum við Bændasamtökin á síðustu mánuðum. Stjórnvöld hafa einkum tekið mið af þeim áherslum sem finna má í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, landbúnaðarstefnu sem Alþingi samþykkti 2023 og áunninni reynslu af núverandi kerfi,“ segir í tilkynningu.