
Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð í dag vegna útfarar
Í dag klukkan 13 fer fram frá Akraneskirkju útför Ómars Arnar Kristóferssonar, sveitarstjórnarfulltrúa í Hvalfjarðarsveit. Af þeim sökum verður skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð frá hádegi í dag.
Ómar Örn Kristófersson var fæddur 1. júní 1982. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Lambalæk í Hvalfjarðarsveit 17. janúar síðastliðinn. Sveitarstjórn og sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar minnast Ómars Arnar: „Hann sat í sveitarstjórn frá upphafi núverandi kjörtímabils og sinnti störfum í nefndum sveitarfélagsins. Framlag hans til sveitarstjórnarmála í Hvalfjarðarsveit var unnið af virðingu og í góðu samstarfi, fyrir það þakkar sveitarstjórn og sveitarstjóri af heilum hug. Minning um góðhjartaðan og jákvæðan mann mun lifa áfram og er sambýliskonu, börnum og fjölskyldu Ómars vottuð innileg samúð, missir þeirra er mikill, megi Guð veita þeim styrk í sorginni.“