Fréttir

true

Grillhúsið með Bubba Tribute á laugardaginn

Næstkomandi laugardagskvöld mun tiltölulega nýstofnuð Bubba Tribute hljómsveit, ættuð úr Borgarnesi, verða með tónleika á Grillhúsinu Borgarnesi. Boðið verður upp á þriggja rétta matseðil, en nú þegar er uppselt á viðburðinn. Þarna munu auk heimafólks tveir gestagítarleikarar koma við sögu; þeir Sigurgeir Sigmundsson úr Gildrunni og Gunnar Örn gítarsmiður. Ungir strákar úr Borgarnesi munu einnig…Lesa meira

true

Skorað á stjórnvöld að flýta brýnum framkvæmdum við vegakerfið

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fór í Ólafsvík 16. október sl. var samþykkt að skora á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að ljúka vinnu við samgönguáætlun sem fyrst og hvetja innviðaráðuneytið til að hefja undirbúning að gerð samgöngusáttmála fyrir Vesturland sem og aðra landshluta. „Haustþing SSV skorar á innviðaráðherra og Alþingi að rétta…Lesa meira

true

Salmonella í pólskum Pekingöndum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Pekingöndum vegna þess að salmonella greindist í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Julius, Vöruheiti: Heil önd (Pekingönd), Lotunúmer: 3482255. Endurnar hafa verið í sölu og dreifingu hjá verslunum Hagkaupa og Bónuss um land allt. „Viðskiptavinum Bónus…Lesa meira

true

Eldur Smári leiðir lista Lýðræðisflokksins í NV kjördæmi

Lýðræðisflokkurinn, sem stofnaður var af Arnari Þór Jónssyni, kynnti í morgun þrjá efstu á lista í hverju kjördæmi fyrir sig ásamt nokkrum af stefnumálum flokksins. Flokkurinn stefnir á framboð í öllum kjördæmum. Í tilkynningu flokksins kemur fram að hann hafi verið stofnaður með það markmið að auka einstaklingsfrelsi og draga úr miðstýringu ríkisvaldsins. Flokkurinn leggi…Lesa meira

true

Atvinnuleysi er að aukast

Í september síðastliðnum voru 12.700 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,2%, hlutfall starfandi var 79,2% og atvinnuþátttaka var 83,5%. „Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi tvöfaldaðist á milli mánaða, hlutfall starfandi lækkaði um 2,3 prósentustig og atvinnuþátttaka stóð nánast í stað. Fyrir september mánuð má sjá nokkra breytingu frá undanförnum mælingum á vinnuafli en…Lesa meira

true

Tími kominn á að splæsa tógin upp á nýtt

Þótt ekki sé róið til fiskjar er samt ýmisleg sem þarf að gera í landlegunni. Meðal annars þarf að yfirfara og lagfæra veiðarfærin, eins og áhafnarmeðlimir á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH frá Ólafsvík gerðu í gær. Tími var kominn til að mæla tog-tógin og splæsa upp á nýtt því með tíma og notkun teygist á…Lesa meira

true

María Rut leiðir lista Viðreisnar

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á fundi landshlutaráðs flokksins í gær með öllum greiddum atkvæðum. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, leiðir listann. Í öðru sæti er Edit Ómarsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá Advania. Þriðja sætið skipar Ragnar Már Ragnarsson, byggingafulltrúi Snæfellsbæjar, og í fjórða sæti er Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun Fiskisögusafns Grundarfjarðar

Hópur fólks undir forystu Einars Sveins Ólafssonar vinnur nú að kynningu á viðskiptahugmynd sem snýst um stofnun Fiskisögusafns í Grundarfirði. Stefnt er að því að safnið verði til húsa í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar. Núverandi eigandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar og hófust í sumar viðræður við forsvarmenn hans um nýtingu hússins, þar sem þessi hluti hefur ekki…Lesa meira

true

Bæjarstarfsmenn á ýmsum tímum

Myndapistill Halla Bjarna – 1. hluti Á heilli starfsævi leggst manni ýmislegt til af myndefni, ekki síst þegar blaðamennska hefur tekið mestallan tímann. Ég byrjaði snemma að taka ljósmyndir og var byrjaður að framkalla þær sjálfur um 10-12 ára aldur. Eftir ljósmyndanámskeið á vegum Æskulýðsráðs Akraness, sem Ingvar Ingvarsson leiddi sem æskulýðsfulltrúi, jókst ljósmyndaáhuginn. Leiðbeinendur…Lesa meira

true

Sala Neyðarkalls björgunarsveitanna hefst í næstu viku

Eins og flestir vita þá er sala Neyðarkalls björgunarsveitanna ein mikilvægasta fjáröflun þeirra á ári hverju. Landsbjörg undirbýr nú söluna í samráði við sveitir um land allt. Áætlaðir söludagar eru 30. október til 3. nóvember. Landsmenn eru hvattir til að taka vel á móti sölufólki.Lesa meira