Salmonella í pólskum Pekingöndum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Pekingöndum vegna þess að salmonella greindist í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Julius, Vöruheiti: Heil önd (Pekingönd), Lotunúmer: 3482255. Endurnar hafa verið í sölu og dreifingu hjá verslunum Hagkaupa og Bónuss um land allt.

„Viðskiptavinum Bónus og Hagkaups sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að neyta hennar og er bent á að setja sig í samband við Aðföng. Fyrir hönd framleiðanda vörunnar biður Aðföng viðskiptavini Bónus og Hagkaups sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gm@adfong.is

Salmonella í pólskum Pekingöndum - Skessuhorn