
Unnið við splæsingu í gær. Ljósm. af
Tími kominn á að splæsa tógin upp á nýtt
Þótt ekki sé róið til fiskjar er samt ýmisleg sem þarf að gera í landlegunni. Meðal annars þarf að yfirfara og lagfæra veiðarfærin, eins og áhafnarmeðlimir á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH frá Ólafsvík gerðu í gær. Tími var kominn til að mæla tog-tógin og splæsa upp á nýtt því með tíma og notkun teygist á þeim og þarf að endurnýja splæsin. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Guðbjörn Egilsson og Sigtryggur Þráinsson ásamt netagerðarmeistaranum Aðalsteini Snæbjörnssyni í votviðrinu í Ólafsvík í gær.