
Eldur Smári Kristinsson.
Eldur Smári leiðir lista Lýðræðisflokksins í NV kjördæmi
Lýðræðisflokkurinn, sem stofnaður var af Arnari Þór Jónssyni, kynnti í morgun þrjá efstu á lista í hverju kjördæmi fyrir sig ásamt nokkrum af stefnumálum flokksins. Flokkurinn stefnir á framboð í öllum kjördæmum. Í tilkynningu flokksins kemur fram að hann hafi verið stofnaður með það markmið að auka einstaklingsfrelsi og draga úr miðstýringu ríkisvaldsins. Flokkurinn leggi áherslu á að tryggja borgurum rétt til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf, sér í lagi á sviðum efnahags, atvinnumála og menningar. Þá vilji flokkurinn einnig hófsemi í ríkisútgjöldum og vilji að skattalækkanir verði til þess að efla atvinnufrelsi og skapa ný tækifæri í íslensku efnahagslífi.