Svipmynd af umferð um illa farinn Snæfellsnesvegi 54 við Kaldármela. Ljósm. mm

Skorað á stjórnvöld að flýta brýnum framkvæmdum við vegakerfið

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fór í Ólafsvík 16. október sl. var samþykkt að skora á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að ljúka vinnu við samgönguáætlun sem fyrst og hvetja innviðaráðuneytið til að hefja undirbúning að gerð samgöngusáttmála fyrir Vesturland sem og aðra landshluta. „Haustþing SSV skorar á innviðaráðherra og Alþingi að rétta hlut Vesturlands og jafna stöðu landshlutanna við úthlutun fjármagns til vegamála í úthlutun fjármagns í nýrri Samgönguáætlun 2024-2028.“

Skorað á stjórnvöld að flýta brýnum framkvæmdum við vegakerfið - Skessuhorn