Ef af hugmyndum um Fiskisögusafn Grundarfjarðar verður er stefnt að því verði fundinn staður í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar. Ljósm. tfk

Undirbúa stofnun Fiskisögusafns Grundarfjarðar

Hópur fólks undir forystu Einars Sveins Ólafssonar vinnur nú að kynningu á viðskiptahugmynd sem snýst um stofnun Fiskisögusafns í Grundarfirði. Stefnt er að því að safnið verði til húsa í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar. Núverandi eigandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar og hófust í sumar viðræður við forsvarmenn hans um nýtingu hússins, þar sem þessi hluti hefur ekki verið nýttur undir starfsemi fiskmarkaðar.

Undirbúa stofnun Fiskisögusafns Grundarfjarðar - Skessuhorn