Grillhúsið með Bubba Tribute á laugardaginn

Næstkomandi laugardagskvöld mun tiltölulega nýstofnuð Bubba Tribute hljómsveit, ættuð úr Borgarnesi, verða með tónleika á Grillhúsinu Borgarnesi. Boðið verður upp á þriggja rétta matseðil, en nú þegar er uppselt á viðburðinn. Þarna munu auk heimafólks tveir gestagítarleikarar koma við sögu; þeir Sigurgeir Sigmundsson úr Gildrunni og Gunnar Örn gítarsmiður. Ungir strákar úr Borgarnesi munu einnig koma fram á undan.

Grillhúsið með Bubba Tribute á laugardaginn - Skessuhorn