Fréttir

true

Stór hópur Grundfirðinga ferðaðist til Paimpol í Frakklandi – Myndasyrpa

Dagana 16. – 22. október lögðu 38 Grundfirðingar land undir fót og heimsóttu vinabæ Grundarfjarðar, Paimpol í Frakklandi. Fyrsti dagurinn var ansi strembinn enda flogið snemma til Parísar þar sem við tók átta klukkustunda rútuferð á Bretaníuskagann og til Paimpol. Þar var móttökunefnd á hótelinu sem tók á móti Íslendingunum og var snæddur kvöldverður þar…Lesa meira

true

Bæði Snæfellsliðin fá erfiða andstæðinga í bikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfubolta. Karla- og kvennalið Snæfells voru þar í potti en 16-liða úrslitin verða leikin dagana 7.-9. desember næstkomandi. Bæði lið fengu útileiki í sínum viðureignum, en karlalið Snæfells heimsækir úrvalsdeildarlið Álftaness en kvennalið Snæfells heimsækir úrvalsdeildarlið Grindavíkur.Lesa meira

true

Við viljum hafa tónlist sem höfðar til sem flestra

Rætt við Berg Líndal Guðnason, einn skipuleggjanda Lilló harðkjarnapönkhátíðar á Akranesi Núna um helgina, dagana 25-26. október, verður Lilló harðkjarnapönkhátíð haldin á Akranesi. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2022 en upphaflega hugmyndin var að halda tónleika til að fagna 30 ára afmæli Skagarokks 1992 þar sem Jethro Tull og Black Sabbath spiluðu í íþróttahúsinu…Lesa meira

true

Landsvirkjun boðar auknar raforkuskerðingar í erfiðu árferði

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að grípa verði til skerðinga á afhendingu raforku til þeirra frá 23. nóvember. Á morgun, 24. október, taka jafnframt gildi áður boðaðar skerðingar hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins. „Ekki er hægt að sjá fyrir hversu lengi þessar skerðingar munu standa, en þó má reikna með að…Lesa meira

true

VG birtir framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi

Framboðslisti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á kjördæmisráðsfundi hreyfingarinnar í Norðvesturkjördæmi í gær. Bjarni Jónsson þingmaður flokksins sagði sig nýverið úr honum og er því ekki í framboði fyrir VG. Nýr oddviti listans er Álfhildur Leifsdóttir á Sauðárkróki. Í heild sinni er listinn þannig: 1. Álfhildur Leifsdóttir – Sauðárkróki 2. Bjarki Hjörleifsson – Stykkishólmi…Lesa meira

true

„Allir hér vinna í lausnum“

Litið við í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum Grunnskóli Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum er þessa stundina í miklum hamskiptum. Hluti upprunalegs húsnæðis skólans var rifið í sumar, eftir að upp koma mygla í húsnæðinu. Eru nú 17 færanlegir gámar notaðir til að leysa úr húsnæðismálunum. Helga Jensína Svavarsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar, tók á móti blaðamanni Skessuhorns í…Lesa meira

true

Formaður leigjendasamtakanna fer fram fyrir Sósíalista

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, verður oddviti Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjördæmi í þingkosningum 30. nóvember. Guðmundur Hrafn greindi sjálfur frá þessu á FB síðu sinni. „Það er gríðarleg deigla hjá sósíalistum sem hafa lagt fram trúverðuga stefnu í öllum helstu hagsmunamálum almennings. Það er mér heiður að fá tækifæri til þess að vinna henni fylgi,“ skrifaði…Lesa meira

true

„Stefnan er að byggja upp öflugan rekstur“

Rætt við Ólaf Karl Sigurðarson aðstoðarforstjóra KAPP Skiptastjóri í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi gekk frá samningi um sölu á búnaði og lausafé þrotabúsins í síðustu viku. Hópur fjárfesta náði samkomulagi um kaupin og auk þess munu kaupendurnir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem Skaginn 3X hafði starfsemi sína í og hyggjast hefja…Lesa meira

true

Vökudagar að hefjast á Akranesi – Fjölbreytt dagskrá framundan

Vökudagar, menningar- og listahátíð Akraneskaupstaðar, fara fram í 22. sinn dagana 24. október til 3. nóvember næstkomandi. Að venju eru viðburðir hátíðarinnar fjölbreyttir og fyrir alla aldurshópa en á dagskránni í ár má finna fjölmarga viðburði. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Veru Líndal, sem er forstöðumaður menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, og skipuleggjandi hátíðarinnar.…Lesa meira

true

Námskeiðið Færni á vinnumarkaði er nú í gangi

Námskeið sem heitir Færni á vinnumarkaði hefur verið í gangi á Vesturlandi nú í haust, hófst í september og lýkur í desember. Það er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Símenntunarmiðstöðva um land allt. Um er að ræða starfstengt nám innan framhaldsfræðslunnar fyrir fatlað fólk í atvinnuleit sem er að stíga inn á almenna vinnumarkaðinn. Námið saman stendur…Lesa meira