
Alex Rafn Guðlaugsson og félagar í Snæfelli heimsækja Álftanes í 16-liða úrslitum VÍS bikars karla í körfubolta. Ljósm. Bæring Nói.
Bæði Snæfellsliðin fá erfiða andstæðinga í bikarnum
Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfubolta. Karla- og kvennalið Snæfells voru þar í potti en 16-liða úrslitin verða leikin dagana 7.-9. desember næstkomandi.