
Þórisvatn með Hofsjökul í baksýn.
Landsvirkjun boðar auknar raforkuskerðingar í erfiðu árferði
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að grípa verði til skerðinga á afhendingu raforku til þeirra frá 23. nóvember. Á morgun, 24. október, taka jafnframt gildi áður boðaðar skerðingar hjá stórnotendum á suðvesturhluta landsins. „Ekki er hægt að sjá fyrir hversu lengi þessar skerðingar munu standa, en þó má reikna með að það verði fram á næsta vor. Þá hefur Landsvirkjun jafnframt hvatt stórnotendur til að draga úr álagi og skoða mögulega endursölu á rafmagni í þeim tilgangi. Þetta eru sambærilegar aðgerðir og gripið var til í skerðingum fyrr á þessu ári,“ segir í tilkynningu.