
Í hinum ægifagra garði við Abbaey Beuport klaustrið er margt forvitnilegt að skoða. Texti og myndir: TFK
Stór hópur Grundfirðinga ferðaðist til Paimpol í Frakklandi – Myndasyrpa
Dagana 16. – 22. október lögðu 38 Grundfirðingar land undir fót og heimsóttu vinabæ Grundarfjarðar, Paimpol í Frakklandi. Fyrsti dagurinn var ansi strembinn enda flogið snemma til Parísar þar sem við tók átta klukkustunda rútuferð á Bretaníuskagann og til Paimpol. Þar var móttökunefnd á hótelinu sem tók á móti Íslendingunum og var snæddur kvöldverður þar áður en þreyttir ferðalangar lögðust á koddann.