Guðmundur Hrafn. Ljós. úr einkasafni

Formaður leigjendasamtakanna fer fram fyrir Sósíalista

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, verður oddviti Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjördæmi í þingkosningum 30. nóvember. Guðmundur Hrafn greindi sjálfur frá þessu á FB síðu sinni. „Það er gríðarleg deigla hjá sósíalistum sem hafa lagt fram trúverðuga stefnu í öllum helstu hagsmunamálum almennings. Það er mér heiður að fá tækifæri til þess að vinna henni fylgi,“ skrifaði Guðmundur Hrafn. „Öryggi og velferð fyrir alla, en ekki ótta, örbirgð né frekari hnignun innviða,“ bætti hann við.

Formaður leigjendasamtakanna fer fram fyrir Sósíalista - Skessuhorn