F.v: Guðmundur Ingi, Hafþór Ingi blaðamaður, Unnar Eyjólfur, Ásgeir Sigurðsson, Júlíanna Ósk og Bryndís Jóna. Ljósm. blb

Námskeiðið Færni á vinnumarkaði er nú í gangi

Námskeið sem heitir Færni á vinnumarkaði hefur verið í gangi á Vesturlandi nú í haust, hófst í september og lýkur í desember. Það er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Símenntunarmiðstöðva um land allt. Um er að ræða starfstengt nám innan framhaldsfræðslunnar fyrir fatlað fólk í atvinnuleit sem er að stíga inn á almenna vinnumarkaðinn. Námið saman stendur af 70 klukkustundum í fræðslu og 110 klukkustundum í starfsþjálfun, samtals 180 klukkustundir. Að námi loknu fá þátttakendur staðfestingu á hæfni með Fagbréfi atvinnulífsins.

Námskeiðið Færni á vinnumarkaði er nú í gangi - Skessuhorn