
María Rut Kristinsdóttir oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi
María Rut leiðir lista Viðreisnar
Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á fundi landshlutaráðs flokksins í gær með öllum greiddum atkvæðum. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, leiðir listann. Í öðru sæti er Edit Ómarsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá Advania. Þriðja sætið skipar Ragnar Már Ragnarsson, byggingafulltrúi Snæfellsbæjar, og í fjórða sæti er Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.