Fréttir

true

Fjórðungsmót verður haldið í Borgarnesi í júlí

Hestamannafélögin á Vesturlandi hyggjast halda fjórðungsmót vestlenskra hestamanna í Borgarnesi dagana 2.-6. júlí næsta sumar. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt að sveitarfélagið styrkti Hestamannafélagið Borgfirðing um sex milljónir króna vegna mótsins. „Stórir íþrótta- og menningarviðburðir laða gesti í sveitarfélagið og stuðla að beinum tekjum til atvinnulífs og íbúa og óbeinum tekjum til…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar 2024 afhent

Setning Vökudaga fór fram í Tónbergi að viðstöddu fjölmenni í gær og þar afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2024. Markmiðið með þessum verðlaunum er að vinna með umhverfisvitund og skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans. Einnig að vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Veitt…Lesa meira

true

Kíkt í heimsókn til listamanna á Vökudögum – Myndasyrpa

Að lokinni setningu Vökudaga í Tónbergi í gær hófst svokölluð listaganga þar sem bæjarbúar gátu kíkt í heimsókn á opnar vinnustofur ýmissa listamanna víðs vegar um bæinn og á samsýningar þar sem listamenn sýndu verk sín og tóku á móti fólki. Ljósmyndarar Skessuhorns fóru í kvöldgöngu í góða veðrinu í gærkvöldi og smelltu nokkrum myndum…Lesa meira

true

Framkvæmdum miðar ágætlega við íþróttamiðstöðina í Búðardal

Verktakafyrirtækið Eykt er þessa dagana að vinna við byggingu íþróttamiðstöðvar í Búðardal fyrir sveitarfélagið Dalabyggð. Húsið mun rúma líkamsræktarsal, sundlaug og um 600 fm íþróttahús. Fannar Þór Þorfinnsson, byggingarstjóri yfir verkinu hjá Eflu, segir að framkvæmdum miði ágætlega. „Búið er að fylla undir sökkla þar sem íþróttahúsið mun rísa og fyrsta steypan af mörgum var…Lesa meira

true

ÍATV hlýtur Menningarverðlaun Akraness í ár

Menningar- og listahátíðin Vökudagar var sett í 22. skiptið í Tónlistarskólanum á Akranesi seinni partinn í gær og við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2024 afhent. Að þessu sinni hlaut ÍATV verðlaunin en á bak við það verkefni stendur öflugur hópur sjálfboðaliða sem heldur úti og sendir út á myndasíðunni YouTube. Fram kom…Lesa meira

true

Arna Lára og Hannes leiða lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í gærkvöldi. Arna Lára Jónsdóttir á Ísafirði leiðir listann í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson á Akranesi er í öðru sæti, í þriðja sæti er Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Reykhólasveit og fjórða sætið skipar Magnús Vignir Eðvaldsson í Húnaþingi vestra. Listinn í heild…Lesa meira

true

Kíktu í skólaheimsókn í Heiðarskóla

Rósahópur, elsti árgangur barna í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit, kom í sína fyrstu skólaheimsókn í Heiðarskóla á dögunum. Börnin fimm byrjuðu í íþróttasalnum í Heiðarborg hjá Sólrúnu Sigþórsdóttur kennara í skemmtilegum verkefnum. Síðan komu þau í Heiðarskóla þar sem Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri tók á móti þeim og sýndi þeim skólann. Á stöku stað urðu…Lesa meira

true

Starfshópur endurskoðar sóknargjöld í landinu

Í haust skipaði Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra starfshóp undir forystu Kristrúnar Heimisdóttur, sem hefur það hlutverk að endurskoða fyrirkomulag sóknargjalda. Aðrir í starfshópnum eru Gísli Páll Pálsson, Ingvar Smári Birgisson og Sólrún Halldóra Þrastardóttir. Mælt er fyrir innheimtu og skilum sóknargjalda í lögum um sóknargjöld og fleira frá 1987. „Þrátt fyrir að lögin kveði á um…Lesa meira

true

Nýr bátur væntanlegur til Hraðfrystihúss Hellissands

Hraðfrystihús Hellissands hefur fest kaup á fimm ára gömlum dragnótarbáti frá Thyborøn í Danmörku sem heitir Pia Glanz. Gert er ráð fyrir að báturinn fáist afhentur í byrjun desember. Hann var smíðaður í Vestværftet i Hvide Sande árið 2019 og er útbúinn bæði til dragnótar- og togveiða. Pia Granz er 33,25 langt skip, 9,4 metra…Lesa meira