Frá vinstri: Guðríður Sigurjónsdóttir formaður nefndarinnar, Arnar Óðinn Arnþórsson, Heiðar Mar Björnsson, Snorri Kristleifsson og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri. Ljósm. vaks

ÍATV hlýtur Menningarverðlaun Akraness í ár

Menningar- og listahátíðin Vökudagar var sett í 22. skiptið í Tónlistarskólanum á Akranesi seinni partinn í gær og við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2024 afhent. Að þessu sinni hlaut ÍATV verðlaunin en á bak við það verkefni stendur öflugur hópur sjálfboðaliða sem heldur úti og sendir út á myndasíðunni YouTube.

ÍATV hlýtur Menningarverðlaun Akraness í ár - Skessuhorn