
Aukinn forgangsakstur neyðarbíla algengasta orsök þess að göngunum er lokað
Vegfarendur sem reglulega aka Hvalfjarðargöng hafa haft á orði að færst hefur í vöxt að göngunum sé oftar lokað, en þó í flestum tilfellum í skemmri tíma. „Það er tilfinning mín, og margra sem ég hef rætt við, að tilfellum þar sem göngin eru lokuð hefur fjölgað mjög,“ segir íbúi í Borgarnesi í samtali við blaðamann. „Ég og fjölskylda mín er búin að lenda nokkrum sinnum í því á fáum dögum að sitja og bíða í lest bíla og enginn veit hvað lokunin varir lengi. Tengdasonur minn býr í Borgarnesi en fer flesta daga suður til vinnu. Sökum eðlis vinnu hans, þ.e. mikilvægis að mæta á réttum tíma, er hann hættur að geta treyst á venjulegan ferðatíma í ljósi þess hversu göngin eru oft lokuð.“ Sömu sögu hafa fleiri að segja. Viðkomandi benda á að gagnlegt gæti verið að setja upp upplýsingaskilti um Hvalfjarðargöngin, til dæmis í Mosfellsbæ, við Laxá í Leirársveit og á Akranesi. „Það væri rétti staðurinn til að upplýsa ökumenn til að þeir geti ákveðið hvernig bregðast skuli við á ferðum sínum. Erlendis er víða umferðarútvarp sem varar við svona uppákomum í umferðinni og það hlýtur að vera auðvelt að auka almenna upplýsingamiðlun til vegfarenda.“