
Í Hafbjargarhúsinu á Breið er samsýningin Heimþrá þar sem finna má verk eftir Steinunni Eik, Studio Allsber og Blik Stúdíó. Ljósm. vaks
Kíkt í heimsókn til listamanna á Vökudögum – Myndasyrpa
Að lokinni setningu Vökudaga í Tónbergi í gær hófst svokölluð listaganga þar sem bæjarbúar gátu kíkt í heimsókn á opnar vinnustofur ýmissa listamanna víðs vegar um bæinn og á samsýningar þar sem listamenn sýndu verk sín og tóku á móti fólki. Ljósmyndarar Skessuhorns fóru í kvöldgöngu í góða veðrinu í gærkvöldi og smelltu nokkrum myndum af herlegheitunum.