
Arna Lára og Hannes leiða lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í gærkvöldi. Arna Lára Jónsdóttir á Ísafirði leiðir listann í Norðvesturkjördæmi. Hannes S. Jónsson á Akranesi er í öðru sæti, í þriðja sæti er Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Reykhólasveit og fjórða sætið skipar Magnús Vignir Eðvaldsson í Húnaþingi vestra.