
Krakkarnir fimm voru smá feimin. Ljósm. Heiðarskóli
Kíktu í skólaheimsókn í Heiðarskóla
Rósahópur, elsti árgangur barna í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit, kom í sína fyrstu skólaheimsókn í Heiðarskóla á dögunum. Börnin fimm byrjuðu í íþróttasalnum í Heiðarborg hjá Sólrúnu Sigþórsdóttur kennara í skemmtilegum verkefnum. Síðan komu þau í Heiðarskóla þar sem Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri tók á móti þeim og sýndi þeim skólann.