Fréttir

true

Hvanneyrarkýrnar heilluðu gesti

Alls fóru 67 mjólkandi kýr úr Hvanneyrarfjósi í gærmorgun að viðstöddu fjölmenni, en skólakrakkar frá leikskólanum Andabæ á Hvanneyri voru þar áberandi. Er þetta tíunda árið í röð þar sem auglýst er fyrir utanaðkomandi gesti að vera vitni að þessum skemmtilega atburði. Kýrnar virtust vera nokkuð ringlaðar þegar þær komu út úr fjósinu en þegar…Lesa meira

true

Úrbana mun koma að samningu nýrrar sóknaráætlunar

Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem fela í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir yfir ákveðið tímabil. Eru þær unnar í víðtæku samráði heimamanna með aðkomu sveitarstjórnarfulltrúa, íbúa og ýmissa annarra hagaðila. Áhersluverkefni og verkefni styrkt af uppbyggingarsjóðum taka síðan mið af áherslum sóknaráætlunar í hverjum landshluta. Byggðastofnun og stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál bera ábyrgð…Lesa meira

true

Á Hvanneyri frá Róm!

Daniele Stefano er doktor í landslagsarkitektúr frá Sapienza háskólanum í Róm á Ítalíu. Undanfarið ár hefur hann unnið við kennslu og rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og unir sér vel. Fallegt og vinalegt samfélag Daniele er fæddur og uppalinn í Róm og utan þriggja ára við nám og störf í Portúgal hefur hann búið…Lesa meira

true

Prjónaskapurinn hefur hjálpað mér

Rætt við Guðrúnu Elísabetu Jóhannsdóttur bónda á Stóra Múla í Dölum „Sauðburðurinn er að klárast hjá okkur. Það á ein eftir að bera hjá okkur og þá get ég farið að taka á móti prjónahópum aftur,“ segir Guðrún Elísabet Jóhannsdóttir á Stóra Múla þegar við göngum inn í fjósið á bænum hennar. Fjósinu er nú…Lesa meira

true

Varmalandsdagar verða fyrsta bæjarhátíðin í sumar

Núna um helgina, dagana 15. og 16. júní, verða Varmalandsdagar haldnir í annað sinn á Varmalandi í Stafholtstungum. Að sögn Vilhjálms Hjörleifssonar á hátíðin rætur sínar að rekja til Hollvinafélags Varmalands sem stofnað var árið 2020. „Hvatinn að hátíðinni var í upphafi að halda hátíð til að kynna Varmaland betur og fá gesti til að…Lesa meira

true

Telja ekki sýnt fram á að heilbrigðiseftirlit eigi betur heima hjá ríkinu

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ályktað um fyrirætlan umhverfisráðuneytisins að færa málaflokk heilbrigðiseftirlits í landinu frá sveitarfélögum til ríkisins. Í tilkynningu frá ráðuneytinu í október á síðasta ári sagði: „Þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarháttum og matvælaeftirliti,“ en þar var vísað til niðurstöðu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og…Lesa meira

true

Bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi í sumar

Bæjar- og héraðshátíðir verða haldnar nokkuð víða á Vesturlandi í sumar. Þó er það þannig að jafnvel þótt komnar séu dagsetningar á þær allar þá er dagskráin ekki alveg tilbúin og fullmótuð enda enn nægur tími til undirbúnings. Skessuhorn tók saman yfirlit og dagsetningar yfir þær hátíðir sem útlit er fyrir að verði haldnar á…Lesa meira

true

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi

Fyrirtækið Running Tide hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki hér á landi og hættir þar starfsemi. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins greindi í vikunni frá því á Linkedin síðu sinni að fyrirtækið væri þó ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Vísir.is greindi fyrst…Lesa meira

true

Þau fara fyrir Vesturland á Landsmót hestamanna 2024

Sameiginlega úrtaka vestlenskra hestamannafélaga fyrir Landsmót hestamanna, sem fram fer í Reykjavík dagana 1.-7. júlí, fór fram í Borgarnesi helgina 8. og 9. júni. Skráning í úrtöku var óvenju dræm að þessu sinni, en það fer eftir félagafjölda hvað hvert félag má senda marga fulltrúa í hvern flokk á landsmóti. Borgfirðingur má þannig senda fjóra,…Lesa meira

true

Fleiri við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda

Á vefsíðu Hagstofu Íslands kemur fram að á skólaárinu 2023-2024 hafi 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskóla verið án kennsluréttinda en hlutfallið hefur ekki verið hærra frá árinu 2002. Hlutfallslega fleiri karlar en konur voru án réttinda en yfir 26,9% þeirra voru án réttinda á meðan 16,9% kvenna voru án réttinda. Alls voru 9.475 starfsmenn…Lesa meira