
Fleiri við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda
Á vefsíðu Hagstofu Íslands kemur fram að á skólaárinu 2023-2024 hafi 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskóla verið án kennsluréttinda en hlutfallið hefur ekki verið hærra frá árinu 2002. Hlutfallslega fleiri karlar en konur voru án réttinda en yfir 26,9% þeirra voru án réttinda á meðan 16,9% kvenna voru án réttinda.