
Varmalandsdagar verða fyrsta bæjarhátíðin í sumar
Núna um helgina, dagana 15. og 16. júní, verða Varmalandsdagar haldnir í annað sinn á Varmalandi í Stafholtstungum. Að sögn Vilhjálms Hjörleifssonar á hátíðin rætur sínar að rekja til Hollvinafélags Varmalands sem stofnað var árið 2020. „Hvatinn að hátíðinni var í upphafi að halda hátíð til að kynna Varmaland betur og fá gesti til að njóta þess sem staðurinn hafi upp á að bjóða. Litið var til þeirrar sérstöðu sem staðurinn hefur og þar skipa skólarnir tveir; barnaskóli og húsmæðraskóli, stóran sess. Þó að húsmæðraskólinn sé ekki enn starfræktur, þá hefur saga hans haft mikil áhrif á staðinn og þá sem í honum voru,“ segir Vilhjálmur.
Villi segir að undirtitill hátíðarinnar sé list og lyst. „Þar er vísan í þá miklu listsköpun er fram fór í skólunum báðum um árabil og gerir enn. Og jafnframt matarlyst, sem ekki síst var hluti af námi í húsmæðraskólanum, sem nú er orðinn hótel. Lagt var upp með að Varmalandsdagar / List og Lyst yrði ekki enn ein bæjarhátíðin með hoppukastala og kandí floss, þó það sé ekki neitt að því, heldur hafi staðurinn og hátíðin sérstöðu og haldi því á lofti með öðrum hætti. Listamenn af ýmsu tagi verða með sýningar. Þar má t.d. nefna Svanheiði Ingimundardóttur úr Borgarnesi sem sýnir vatnslitamyndir, Elva Hreiðars sýnir myndir sem eru unnar með blandaðri tækni en Elva bjó um hríð í Borgarnesi og er nú búsett syðra. Akurnesingarnir Baski (Bjarni Skúli Ketilsson) og Tinna Royal, kynna og sýna verk sín. Alvöru sveitatónlistar tónleikar verða á laugardagskvöldinu. Þar spila nokkrir af færustu tónlistarmönnum landsins má segja, í hljómsveitinni Festival. Tónleikar sem ungir sem aldnir hafa gaman af. Á sunnudagskvöldinu verður Tungufellsmóri vakinn upp og hann flytur frumsamin verk, syngur og spilar. Hann kemur í kjölfarið á lögum Sigfúsar Halldórssonar, sem félagarnir Örn Árnason og Jónas Þórir syngja og spila.“
Villi segir að báða dagana verði Fjöllistahópur úr Grindavík að störfum í Þinghamri. „Pappasmiðjan er t.d. skemmtilegt verkefni fyrir börn, sem hópurinn sér um. Og þau syngja, spila, teikna og tálga, svo eitthvað sé nefnt. Mjög forvitnilegt. Matarlystinni verða gerð góð skil með framboði á alls konar mat, þar er í forsvari Stuðningsfélagið, sem safnar og styður við bakið á ungum og upprennandi liðsmanni íslenska unglingalandsliðsins í körfubolta. Grillað verður við Imbugrill í skóginum. Sundlaug og tjaldstæði verða opin og Hótel Varmaland er með tilboð á kvöldmat.“ Villi segir að dagskráin sé að verða fullmótuð og verður kynnt fljótlega á www.varmalandsdagar.com. „Það má segja að það verði forvitnilegt og gaman að skreppa í heimsókn í Varmaland helgina fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga.“