Haustið 2022 voru skipsfarmar af trjákurli fluttir til Grundartanga á vegum Running Tide. Kurlið var síðan örvað með stórþörungum sem bundu kolefni á sérhönnuðum kolefnisflothylkjum á hafi úti. Hylkin sukku á botn og áttu þannig að binda kolefni varanlega. Ljósm. úr safni/ki

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi

Fyrirtækið Running Tide hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki hér á landi og hættir þar starfsemi. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins greindi í vikunni frá því á Linkedin síðu sinni að fyrirtækið væri þó ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Vísir.is greindi fyrst frá. Kristinn sagði fjármögnun rannsóknar- og nýsköpunarstarfs almennt vera erfiða og sérstaklega í núverandi hávaxtalandslagi. Þar af leiðandi hafi ekki tekist að fjármagna næstu skref starfseminnar. Running Tide hefur m.a. haft aðstöðu í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi en hluti starfseminnar hér á landi var á Grundartanga. Á Akranesi var starfrækt líftæknisetur, þörungarækt og rannsóknarstofu, sem vann að þróun og rannsóknum tengdum kolefnisbindingu í hafi.