
Telja ekki sýnt fram á að heilbrigðiseftirlit eigi betur heima hjá ríkinu
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ályktað um fyrirætlan umhverfisráðuneytisins að færa málaflokk heilbrigðiseftirlits í landinu frá sveitarfélögum til ríkisins. Í tilkynningu frá ráðuneytinu í október á síðasta ári sagði: „Þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarháttum og matvælaeftirliti,“ en þar var vísað til niðurstöðu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í október 2022 í samráði við matvælaráðherra, til að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum. Niðurstaða starfshópsins var m.a. sú að þörf væri á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits og lagt til að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna verði lagðar niður og starfsemi heilbrigðiseftirlita færð á annað stjórnsýslustig, þ.e. til stofnana ríkisins. Svo virðist sem lítið ef eitthvað samráð hafi verið haft við sveitarfélögin um málið, en þau bera í dag ábyrgð á málaflokknum.