
Samið um aðkomu Úrbana að gerð nýrrar sóknaráætlunar fyrir Vesturland. Hér er starfsfólk SSV ásamt Hrafnkeli Proppé og Héðni Unnsteinssyni frá Úrbana. F.v. Ólöf, Svala, Vífill, Margrét Björk, Helga, Páll, Hrafnkell, Hrafnhildur og Héðinn. Ljósm. ssv.
Úrbana mun koma að samningu nýrrar sóknaráætlunar
Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem fela í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir yfir ákveðið tímabil. Eru þær unnar í víðtæku samráði heimamanna með aðkomu sveitarstjórnarfulltrúa, íbúa og ýmissa annarra hagaðila. Áhersluverkefni og verkefni styrkt af uppbyggingarsjóðum taka síðan mið af áherslum sóknaráætlunar í hverjum landshluta. Byggðastofnun og stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál bera ábyrgð á mati á framvindu sóknaráætlana og eftirliti með fjárreiðum þeirra.