
Leikskólakrakkar frá Andabæ voru búin að ná bestu sætum fyrir atburðinn. Ljósm. hig
Hvanneyrarkýrnar heilluðu gesti
Alls fóru 67 mjólkandi kýr úr Hvanneyrarfjósi í gærmorgun að viðstöddu fjölmenni, en skólakrakkar frá leikskólanum Andabæ á Hvanneyri voru þar áberandi. Er þetta tíunda árið í röð þar sem auglýst er fyrir utanaðkomandi gesti að vera vitni að þessum skemmtilega atburði. Kýrnar virtust vera nokkuð ringlaðar þegar þær komu út úr fjósinu en þegar þær komust á túnið við hlið fjóssins fóru þær að sprikla og hlupu eins og vindurinn.