Danskir dagar og Landsmót 50+ voru haldin í Stykkishólmi í lok júní í fyrra. Ljósm. sá

Bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi í sumar

Bæjar- og héraðshátíðir verða haldnar nokkuð víða á Vesturlandi í sumar. Þó er það þannig að jafnvel þótt komnar séu dagsetningar á þær allar þá er dagskráin ekki alveg tilbúin og fullmótuð enda enn nægur tími til undirbúnings. Skessuhorn tók saman yfirlit og dagsetningar yfir þær hátíðir sem útlit er fyrir að verði haldnar á Vesturlandi í sumar.