Fréttir

true

Hólmfríður skipuð rektor Háskólans á Hólum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar hefur skipað dr. Hólmfríði Sveinsdóttur rektor Háskólans á Hólum til næstu fimm ára. Skipan Hólmfríðar er samkvæmt einróma ákvörðun háskólaráðs frá 25. mars sl. um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Tekur hún við starfinu af Erlu Björk Örnólfsdóttur. Hólmfríður er með meistaragráðu í næringarfræði frá…Lesa meira

true

Skátar funda á Bifröst um helgina

Skátaþing verður haldið á Bifröst um helgina, dagana 1. – 3. apríl. Þar verður í forgrunni að vinna með uppfærðan dagskrárramma skátastarfsins. Rúmlega hundrað skátar í leiðtogahlutverkum munu mæta og leggja línur fyrir starfið á næstunni. Sjálfkjörið er í öll embætti á þinginu. Marta Magnúsdóttir úr Grundarfirði, sem verið hefur skátahöfðingi í 5 ár, gaf…Lesa meira

true

Samþykkja kaup á dælubíl í báðum sveitarfélögunum

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag voru samþykkt kaup á dælubíl fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar samkvæmt fyrirliggjandi tilboði frá Ólafi Gíslasyni & Co hf. að fjárhæð um 92 milljónir króna. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti sömuleiðis fyrir sitt leyti á fundi sínum í liðinni viku að tilboðinu verði tekið. Tilboðið var það eina sem barst en…Lesa meira

true

Tilkynna þarf breytt heimilisfang fyrir næsta miðvikudag

Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir hádegi miðvikudaginn 6. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 14. maí 2022. Skráning kjósanda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis hans kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár þann 6. apríl 2022. „Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilisflutning berist Þjóðskrá eigi…Lesa meira

true

Nótan var haldin í Stykkishólmskirkju

Um þarsíðustu helgi var haldin mikil tónlistarveisla um land allt, Nótan uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Tónlistarskólar á Vesturlandi og Vestfjörðum komu saman í Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. mars og segir á vef Grundarfjarðarbæjar að tónleikarnir hafi verið hinir glæsilegustu. Nemendur sex tónlistarskóla komu fram og stóðu sig allir með prýði. Fulltrúar tónlistarskólans í Grundarfirði voru þeir Einir Hugi…Lesa meira

true

Leikritið Bróðir minn Ljónshjarta sett upp

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar setur upp leikritið Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren nú í byrjun apríl. Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Theodóra Þorsteinsdóttir hafa í vetur verið að vinna með leikverk eftir Astrid Lindgren. Sigríður útbjó leikgerð með atriðum úr leikritinu og er tónlistin fengin úr ýmsum áttum, meðal annars má heyra íslensk þjóðlög, erlend ljóð,…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Stuð á Skammhlaupi í FVA

Skammhlaup 2022 í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fór nýverið fram. Hófst fjörið á hádegi með skrúðgöngu nemenda í lögreglufylgd frá skólanum niður í íþróttahúsið við Vesturgötu þar sem keppnin hófst.  Þar var keppt í ullarsokkaboðhlaupi, þrautabraut, stígvélasparki, limbói og reiptogi. Að því loknu var farið aftur upp í skóla þar sem alls kyns þrautir voru…Lesa meira

true

Banaslys á Bröttubrekku

Karlmaður, sem var einn á ferð á vélsleða um kvöldmatarleytið í gær, lést eftir að hafa lent í slysi nærri Bröttubrekku. Björgunarsveitir fengu útkallsbeiðni klukkan 19:08 eftir að vélsleðamenn sem áttu leið um svæðið fundu manninn og gerðu viðvart. Tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu lögreglunnar og bætt við…Lesa meira

true

Árni Friðriksson kom inn til löndunar

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 kom til hafnar í Grundarfirði miðvikudaginn 22. mars síðastliðinn. Marsrallið var þá í fullum gangi og þurfti skipið að koma til löndunar þar sem mikið af karfa hafði komið í veiðarfærin, en alla jafna þarf ekki mikinn afla til að fylla geymslur skipsins. Skipið hafði verið að toga vestan- og…Lesa meira

true

Rauða fjöðrin seld til styrktar kaupum á leiðsöguhundum fyrir blinda

Lionshreyfingin á Íslandi safnar fé á nokkurra ára fresti til góðra málefna undir merkinu „Rauða fjöðrin“. Nú hafa Lionshreyfingin og Blindrafélagið tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu til nýrra notenda og til endurnýjunar þeirra hunda sem nú þegar eru til staðar. Samstarf Lions og Blindrafélagsins byggir á gömlum…Lesa meira